På vej er kennslubók í dönsku ætluð nemendum í framhaldsskóla og er upprifjun á námsþáttum efstu bekkja grunnskóla.
Námsefnið byggir á námskrá erlendra tungumála frá 2011 með áherslu á færniþættina óra, þ.e. lestur, hlustun, tal og ritun. Einnig eru grunnþættirnir sex úr aðalnámskrá hafðir að leiðarljósi, þ.e. læsi, sjálfbærni, jafnrétti, lýðræði, velferð og heilbrigði ásamt sköpun, og eru verkefni í bókinni sem styðja við þau markmið.
Mikil áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér markvisst nýjan orðaforða og geti beitt honum munnlega og skriflega. Nemendum eru gefnar stoðir, þ.e. fyrirmyndir og hugmyndir að því hvernig þeir geta tjáð sig á málinu.
Höfundar: Elísabet Valtýsdóttir og Erna Jessen
52 bls./ útgáfa 2013,
ISBN 978-9979-67-330-9
[/orbit_accordion_panel][orbit_accordion_panel panel_active=“false“ title=“På vej – Hlustunaræfingar“]
[/orbit_accordion_panel][/orbit_accordion]



